 |
 |
24.12.2009 |
| Gleđileg jól, hollvinir Sćgreifans! |
Skötuveislan á Þorláksmessu tókst afar vel og fleiri hafa trúlega fengið sér að borða skötu á Sægreifanum en nokkru sinni fyrr. Bráðabirgðatölur segja að skötugestirnir hafi verið um 300. Mikið annríki var í hádeginu og fram eftir degi en lítið var um að vera í svo sem eins og einn klukkutíma um kaffileytið. Eftir það varð allt vitlaust og fullt út úr dyrum til loka, um kl. 22:00.
Það tekur auðvitað á að þjóna öllu þessum gestum en Sægereifinn býr að því að hafa vant starfsfólk og með samhæfðum handtökum þeirra ganga verkin fljótt og vel! |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
23.12.2009 |
| Skötuát viđ harmóníkuundirleik |
Einlæg Þorláksmessustemning ríkti á Sægreifanum í hádeginu og þétt setinn Svarfaðardalur á báðum hæðum. Fastagestir þustu að og vildu skötuna sína en útlenda túrista bar líka að garði í leit að humarsúpunni heimsfrægu. Öllum var þjónað hratt og vel en auðséð var á andliti þeirra útlendu að þeim þótti undarleg lykt í loftinu og mikið ganga á í húsinu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
23.12.2009 |
| Beitukóngur og sviđakjammi á Ţorláksmessu |
| Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrrverandi alþingismaður, lagði beitukóng á borð með sér á Sægreifanum á Þorláksmessu, leit ekki við skötunni en pantaði sviðakjamma að vanda. Kjartan Sægreifi lét sér ekki bregða, enda hefur hann verið með kappanum til sjós og veit allt um að sjóarinn tekur kjöt jafnan fram yfir fisk. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Kćstur Obama á Ţorláksmessu |
Nú fer hver ađ verđa síđastur ađ panta borđ í skötuveislu Sćgreifans á Ţorláksmessu.Fćrri komust ţar ađ en vildu í fyrra og á ţví verđur ekki breyting í ár enda sama gamla verđiđ: 1.700 krónur. Hver býđur betur í höfuđborginni í ár? Ţeir sem komast ekki ađ á Ţorláksmessu geta í sárabót komiđ til okkar dagana áđur.. Ţá ćtlum viđ nefnilega ađ bjóđa líka upp á skötu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Opiđ alla daga um hátíđar! |
| Sćgreifinn er veitingahús sem sjaldan sefur. Ţar er opiđ alla daga um jól og áramót enda segja húsráđendur ađ ekki sé hćgt ađ gera erlendum ferđamönnum í Reykjavík ţađ ađ koma ađ lokuđum dyrum. Margir ţeirra hafa heyrt eđa séđ um Sćgreifann áđur en ţeir koma til landsins og heimsókn ţangađ er ofarlega á listanum. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Engin jól án áls frá Sćgreifanum |
| Kjartan Sćgreifi vinnur stöđugt ađ ţví ađ fjölga hollvinum álsins, ţess magnađa og merkilega fisks. Í Sćgreifanum fćst reyktur áll frá Járngerđarstöđum í Grindavík og af Mýrum í Borgarfirđi, unađslegur matur sem á heima á veisluborđi jólanna og reyndar hvenćr sem menn vilja gera sér dagamun. |
 |
| Nánar » |
|
|
 |