Reyktur áll er eitt af aðalsmerkjum Sægreifans og þeim fjölgar stöðugt sem geta ekki hugsað sér aðventu- eða jólahlaðborð án þess að ál sé þar að finna.
Nú fer í hönd sá tími ársins þegar mest spurn er eftir þessari vöru og rétt að vekja athygli á því að nóg er til af reyktum ál í forðabúri Sægreifans.
Hægt er að fá fiskinn flakaðan á staðnum og tilbúinn til að bera á borð. Menn geta líka látið setja fiskflökin í gjafaumbúðir. Matgæðingar og sælkerar kunna afar vel að meta að fá reyktan sægreifaál að gjöf, það er margsannað!
Állinn er verkaður og reyktur á staðnum, í eina reykofni sinnar tegundar á Íslandi. Kjartan sægreifi keypti ofninn á sínum tíma og flutti inn frá Þýskalandi.













