Hádegi á síðasta laugardegi marsmánaðar 2012 á Sægreifanum. Allt að gerast. Vor í lofti og Kjartan með skötu í potti að vanda, reyndar í síðasta sinn í laugardagshádegi á þessum vetri. Vilji menn fá skötu í vor og sumar verður að panta fyrir fram. Í haust tekur Kjartan upp þráðinn að nýju og þá geta skötuunnendur gengið aftur að kæstu kræsingunum sínum vísum á ákveðnum tímum.
Margir fengu sér skötu, aðrir grillaðan fisk og enn aðrir humarsúpuna heimsfrægu, þar á meðal 15 manna hópur Frakka og Japana sem birtist og lagði undir sig langborð á efri hæð. Humarsúpa á línuna og allir glaðir.
Ragnar bóndi á Dalshöfða í Fljótshverfi eystra birtist og fékk sér í gogginn. Fanney, systir Kjartans sægreifa, mætti líka í skötuna. Úr varð fjölskyldufundur. Þau eru systkinabörn, Fanney, Kjartan og Ragnar. Svipmótið leynir sér ekki.
Höddi allsherjarreddari leit inn til að borða og redda og Jón Ólafsson, Skaftfellingur og fyrrverandi stjarna í hástökki, heilsaði upp á mannskapinn. Gleymum ekki Gunnari Í. Guðjónssyni sem málar myndverk og seldi helling eftir að Séð og heyrt lagði forðum undir hann tvær opnur. Hann hafði gert góð skókaup og kynnti fjárfestinguna þeim er hafa vildu.
Útlendir túristar voru í hrönnum á Sægreifanum og skipuðu sér á bekki í öllum þremur veitingasölunum. Við kassann beið blíðleg kona með ungabarn í fangi í röð til að borga. Hún skildi hrafl í íslensku og reyndi að tjá sig líka, með góðum árangri. Annelie er þýsk og var að koma hingað til lands í fyrsta sinn. Hún er einn margra Þjóðverja sem hafa fyllst áhuga á Íslandi, Íslendingum og íslensku. Hún hafði einfaldlega útvegað sér kennslugögn í íslensku og byrjað að læra! Svona fólk er gaman að hitta.
Laugardagshádegi á Sægreifanum. Þar er bæði mannlíf og matur eins og best gerist. Þar gerast hlutirnir. Aftur og aftur.







