Ástæða er til að vekja athygli á því að siginn fiskur hefur verið tekinn af matseðli Sægreifans og verður ekki færður upp á disk þar aftur fyrr en í september. Signi fiskurinn er hins vegar seldur þeim sem vilja sjóða hann heima hjá sér. Óþarfi er því að þeir örvænti sem geta ekki hugsað sér að lifa sumarið til enda án þess að borða nokkurn þennan góða og þjóðlega mat.
Skata er heldur ekki í boði á Sægreifanum í sumar, nema menn panti hana fyrir fram. Hún er haust- og vetrarmatur á staðnum, líkt og signi fiskurinn, og skilar sér aftur á matseðilinn í haust.