Sagan hófst þegar sjómaður fór í land

15 Jul

Sagan hófst þegar sjómaður fór í land

kjartanogelisabeth

Kjartan Halldórsson er eigandi Sægreifans, sál staðarins og „andlit“ út á við.               Elísabet Jean Skúladóttir er rekstrarstjóri Sægreifans og annarst veitingastarfsemina.

 

Kjartan var sjómaður til áratuga en ákvað þegar liðið var á starfsævina að fara í land og opna fiskbúð við Reykjavíkurhöfn árið 2002. Meiningin var einfaldlega en sú að selja fisk og sjávarfang eins og gerist og gengur í íslenskum fiskbúðum yfirleitt.

Útlendir ferðamenn fóru fljótlega að venja komur sínar til Kjartans til að spá í fiskinn og aðrar afurðir sjávarins, spjalla og taka myndir. Það dugði ekki, þeir vildu gjarnan fá að smakka líka. Kjartan brást við með því að laga humarsúpu og grilla fisk á spjótum handa þessum útlendu gestum sínum.

Þá varð ekki aftur snúið og fljótlega varð veitingareksturinn umfangsmeiri en fisksalan, ekki síst eftir að erlendir fjölmiðlar fóru að fjalla um Sægreifann, humarsúpuna og Kjartan sjálfan.

Ótal dæmi eru um erlenda gesti sem koma á Sægreifann beint af Keflavíkurflugvelli með úrklippur úr heimspressunni og panta tiltekna rétti sem þar hefur verið skrifað um eftir heimsóknir á Sægreifann: til dæmis humarsúpu, grillfisk eða hrefnukjöt. Oftar en ekki vilja þeir fá að hitta Kjarta í eigin persónu!

Kjartan er mikill áhugamaður um að nýta ál, enda alinn upp við þennan merkilega fisk í Meðallandi í Skaftafellssýslu. Hann kaupir ál til Sægreifans aðallega frá Járngerðarstöðum í Grindavík og af Mýrum í Borgarfirði. Hann reykir fiskinn sjálfur í þýskum reykofni, frystir álinn heilan og selur.

Kjartan Sægreifi Halldórsson átti sjötugsafmæli í byrjun október 2009 og hélt upp á það með stæl í hópi starfsmanna. Flottur hópur og kynjahlutfallið er körlum sýnilega býsna mikið í óhag en Kjartan kvartar alls ekki yfir því….