Glöggt er gestsaugað
21
Jul
Hér eru nokkur dæmi um umsagnir gesta Sægreifans í máli og myndum.
- Þórhildur mælir með humarsúpunni á nudemagazine.is 9. september 2011
- 90% álitsgjafa mæla með Sægreifanum – 20 bestu veitingahúsin DV: 28. nóvember 2010
- Úrval mynda á flickr.com
- Fullkomin humarsúpa
- The New York Times, November 12, 2006: The concoction, called humarsupa, is straightforward, traditional, glaringly honest, delicious and the first thing you should eat when you arrive in town.
- Mikil upphefð fyrir lítinn veitingastað við höfnina: visir.is 14. nóvember 2006
- Lýðheilsustöð og fiskréttir – blaðamannafundur á Sægreifanum 12. febrúar 2007
- Lífsgæði hafnarinnar: Hjálmar Sveinsson 21. ágúst 2010
- The Reykjavik Grapevine: The Lobster Soup at Sægreifinn
- Algjör dúlluveitingastaður – bloggað 30. ágúst 2005
- Bloggsíða Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns sem að sjálfsögðu hefur kíkt inn!
- Toppurinn á Íslandsheimsókninni - bloggað 21. maí 2008
- Staður sem leynir á sér – bloggað 16. maí 2007
- Das Erlebten Unsere Mitglieder – texti og myndir á þýskri vefsíðu frá 28. ágúst 2008.
- Snapshots from Iceland: Grilled Whale from Saegreifinn – heimasíðuskrif frá 3. maí 2009.
- trazzler.com on the lobster soup – heimasíðuskrif 14. apríl 2011.
- proviblog.com: The soup was fantastic – heimasíðuskrif 15. maí 2008.
- Myndasafn Morgunblaðsins – nýtt veitingahús við Reykjavíkurhöfn, júlí 2005
- Sægreifinn á Fésbókinni – Facebook.
- Jónas Kristjánsson, veitingahúsarýnir og fyrrverandi ritstjori, hefur vikið nokkrum sinnum að Sægreifanum á bloggi sínu, jonas.is:
- 27.02.2008
Humarsúpa Sægreifans
Stundum kem ég við hjá Kjartani sægreifa í verbúðunum, þegar ég kem úr hrakningum á leiðinni ofan frá Kaldbak. Humarsúpan er jafnan fín og ódýr, enda orðin fræg víða um heim. Til viðbótar fæ ég mér fiskispjót, núna í vikunni með humri og hlýra. Kjartan er búin að stækka við sig, kominn með sal uppi á lofti og rúmar áttatíu manns. Kontóristar kerfisins eru að plaga hann, vilja að hann fari eftir reglum. Sægreifinn er hins vegar náttúruafl, sem ekki er hægt að umgangast með reglugerðum um brunavarnir. Hann á bara að hafa sjálfvirkt veitingaleyfi. Burtséð frá tilviljunum í innréttingum. - 26.08.2007
Öðuskel sægreifans
Fór í hádeginu í gær til Kjartans sægreifa að borða öðuskel og rífast um hval. Kafarar höfðu veitt skelina, líklega í Hvalfirði. Stór og þykk skel með risastórri hlussu í matinn. Matreidd eins og kræklingur, þurrsoðin á hellu unz til hún opnaðist. Með henni var ekkert nema sítróna. Þetta var bragðmikill skelfiskur, töluvert ólíkur bragðdaufri öðuskel, sem ég fékk á Þórshöfn um daginn. Sægreifinn býður stundum óvenjulegt úr sjó og vötnum. Þekktastur er állinn, sem Kjartan reykir sjálfir. Nauðsynlegt er að hafa sægreifa í matargerðarlistinni í landinu. Næst fæ ég kuðunga hjá honum. - 06.07.2007
Kóngar í ríki sínu
Guðjón Arnar Kristinsson sat á Sægreifanum við mitt átta manna borð hlaðið sviðum og siginni grásleppu, bútungi og ýmsu súrmeti. Aðra eins auglýsingu getur Sægreifinn ekki fengið sem staður matgæðinga. Eins og útlendingarnir störðum við Kristín í aðdáun. En fengum humarsúpu Kjartans greifa og sitt hvort spjótið, annað með stórum rækjum og hitt með risastórum hörpufiski. Súpan var án hveitis og þess vegna fín. Spjótin voru fersk, en ekki krydduð að gagni. Þetta er ódýrt, 800 kall súpan og 1200 kall spjótið. Ég reyndi að verja Hafró, en Addi Kidda Gau sló það kalt með nokkrum vel völdum orðum.
- 27.02.2008
