Jól og áramót

10 Aug

Jól og áramót

Opið er (næstum því) alla daga árið um kring á Sægreifanum, líka um jól og áramót. Aðeins á páskadag er lokað hjá okkur, alla aðra daga opið!

Jólahátíðin gengur raunar í garð hjá okkur á Þorláksmessu þegar við efnum til skötuveislu (myndin er tekin á Þorláksmessu 2009) . Þar komast færri að en vilja og gestir okkar verða því að panta borð í síma 553 1500 – skilyrðislaust!

Um sjálfar hátíðarnar er opið sem hér segir:

  • Aðfangadagur jóla kl. 9:00-14:00.
  • Jóladagur og annar dagur jóla kl. 10:00-15:00.
  • Gamlársdagur kl. 9:00-15:00.
  • Nýársdagur kl. 16:00-21:00