Sægreifinn, ekki bara veitingahús

19 Mar

 Sægreifinn, ekki bara veitingahús

Sægreifinn er ekki aðeins veitingahús heldur einnig verslun með sjávarfang sem viðskiptavinir kaupa og fara með heim til að bera á borð eða elda fyrir sig og sína. Kolbrún, starfsmaður á Sægreifanum, er hér með sýnishorn af helsta sem boðstólum er til að kaupa og hafa með sér. Það getur verið

  • ferskur fiskur af ýmsu tagi, fiskur, rækja eða hrefnukjöt á grillspjótum, humar, humarsúpa, saltsíld, hákarl, reyktur áll, siginn fiskur, sigin grásleppa, hrefnurengi, selspik, saltfiskur, reyktur rauðmagi, reyktur silungur, reykt hrefnukjöt, reyktur rauðmagi, grænmeti, kartöflur, söl, beltisþari og íslenskt jurtate.
  • Vert er að vekja sérstaka athygli á reykta álnum, sem er sannkallaður veislukostur og einkennisréttur Sægreifans. Állinn er meira að segja reyktur á staðnum í ofni sem Kjartan sægreifi Halldórsson fékk frá Þýskalandi til framleiðslunnar.