Veitingahúsið

19 Mar

 

 

 

Sægreifinn er ekki neinu öðru líkur í veitingahúsaflóru Íslendinga. Sjálft húsnæðið er hluti af atvinnu- og menningarsögu Reykjavíkur, dýrindis sjávarfang er fært þar á diska, umhverfið er gamla höfnin í Reykjavík og mannlífið fjölþjóðlegt.

Athvarf skötuunnenda

Margir unnendur sjávarfangs komast ekki upp með það heima hjá sér að sjóða og borða skötu eða siginn fisk með hömsum, signa grásleppu og fleiri álíka eðalrétti.

Þeir hinir sömu eiga sér öruggt skjól á Sægreifanum og hafa myndað óformleg hollvinasamtök um veitingareksturinn þar.

 

Tökum á móti hópum

Á Sægreifanum eru sæti fyrir 25 manns í betri stofunni okkar og fyrir alls 45 manns í tveimur sölum á neðri hæðinni.
Við getum þannig þjónað 70 matargestum samtímis í húsinu.

Við biðjum hópa vinsamlegast um að hringja og panta borð í síma 553 1500

Gestir tala oft um hve notalegt sé að eiga stund í góðum hópi að degi eða kvöldi hérna í betri stofuni á efri hæðinni. Þeir hafa  jafnvel líkt henni við vistlegan sumarbústað fjarri heimsins glaumi.