Matseðillinn

21 Mar

 Matseðillinn


  • Humarsúpa Sægreifans er aðalsmerki okkar árið um kring, enda löngu orðin þekkt um víða veröld.
  • Grillaður fiskur á spjóti er annar einkennisréttur Sægreifans. Við þræðum á spjótin það hráefni sem berst hverju sinni. Sjófangið okkar er að sjálfsögðu ferskt og gott:

Þorskur, blálanga, lax, bleikja, humar, risarækja, steinbítur, lúða, skötuselur, karfi, sólkoli (þykkvalúra), rauðspretta, hrefnukjöt.             

  • Sæagrasúpa er ný á matseðlinum og hróður hennar strax farinn að berast um landið og heimsbyggðina. Í henni eru meðal annars sæbjúgu, sem Kínverjar eru sannfærðir um að auki kynorku og vinni gegn liðagigt, og lúða.
  • Siginn fiskur og skata. Einungis í boði frá 1. september til 30. apríl í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum (siginn fiskur) og á laugardögum (skata). Með þessu berum við fram hamsatólg eða hnoðmör, kartöflur og rúgbrauð.

Eftirrétturinn er enn eitt kennileitið á matseðli Sægreifans: grjónagrauturinn Steingrímur, nefndur  eftir forsætisráðherranum fyrrverandi, Steingrími Hermannssyni.