25.02.2010
 Kynorkusúpan í Sóknarfćri
Kynorkusúpan Sæagra var kynnt sérstaklega til sögunnar í blaðinu Sóknarfæri sem dreift var með Morgunblaðinu í dag. Almannatengslafyrirtækið Athygli gefur Sóknarfæri út og í þetta sinn er blaðið helgað sjávarútveginum.
Greinin í Sóknarfæri er þannig í heild sinni:

Sægreifinn við Reykjavíkurhöfn er veitingastaðurinn fyrir þá sem vilja unaðslegan fisk af grilli eða rifja upp forn kynni af signum fiski og grásleppu. Í hádeginu á laugardögum gegnir Sægreifinn hlutverks flóttamannabúða fyrir skötuunnendur. Þá fjölmenna til matar þeir sem vilja borða þennan kæsta og fína fisk mun oftar en á Þorláksmessu en fá kannski ekki góðfúslegt leyfi annarra í fjölskyldunni til skötuveislu heima hjá sér. Og til að bæta enn um betur: Sægreifinn hefur nú sett á matseðlinn náttúruaukandi súpu, sérsniðna að þörfum þeirra sem vilja styrkja sig á einfaldan hátt á því sviði.

Humarsúpa Sægreifans er löngu orðin heimsfræg og víst má telja að hróður kynorkusúpunnar Sæagra berist líka skjótt um heimsbyggðina, ekki síst þegar áhrif hennar koma í ljós. Höfundur og hönnuður súpunnar er hinn eini og sanni sægreifi, Kjartan Halldórsson, sem fær sér slurk af henni nær daglega og er sprækur eftir því. Kjartan vill ekki ljóstra upp um uppskriftina umfram það að í súpunni séu bæði lúða og sæbjúga. Einmitt sæbjúgað er hráefnið sem mestu máli skiptir þegar náttúran er annars vegar, Kínverjar eru nefnilega öruggir á því að sæbjúgu auki kynhvöt og kynorku og vinni auk þess gegn liðagigt. Hvers vegna skyldu áhrifin vera önnur á íslenska þjóð?

Enginn kreppubragur er á útgerð Sægreifans, enda þarf fólk að borða hvernig sem viðrar og árar. Reksturinn gekk bærilega í fyrra og rúmlega það, ekki síst naut veitingastaðurinn góðs af miklum ferðamannastraumi til landsins. Eftir því var líka tekið að erlendir ferðamenn voru á ferðinni í Reykjavík mun lengur en venjulega eða alveg fram á jólaföstu. Nýja árið fór rólega af stað en þegar kom fram yfir miðjan febrúar glæddust viðskipti á nýjan leik. Erlendir ferðamenn eru til dæmis byrjaðir að banka upp á og virðast fyrr á ferðum nú en áður. Ef svo fer sem horfir verður því líflegt í Sægreifasölum þegar kemur fram á sumarið. Gestir hverfa þá brosandi á braut að lokinni góðri máltíð í umhverfi sem á sér enga hliðstæðu hérlendis og þó víðar væri leitað.

* Á myndinni gæða núverandi og fyrrverandi starfsmenn Fiskistofu sér á signum fiski í hádeginu á Sægreifanum,. Vinstra megin borðs eru Áslaug Hólmgeirsdóttir, Þórhallur Ottesen og Gunnar Alexandersson. Hægra megin eru Guðmundur Jóhannesson, Jón Reynir Eyjólfsson og Jón Þ. Ólafsson. Fyrir borðsendanum stendur Elísabet J. Skúladóttir, rekstrarstjóri veitingastaðar Sægreifans.









1  2  3  4  5  6  7  8  Næsta síđa 
Sćgreifinn, veitiingahús og fiskbúđ
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is