|
|
|
|
 |
 |

|
23.12.2009 |
| Skötuát viđ harmóníkuundirleik |
Einlæg Þorláksmessustemning ríkti á Sægreifanum í hádeginu og þétt setinn Svarfaðardalur á báðum hæðum. Fastagestir þustu að og vildu skötuna sína en útlenda túrista bar líka að garði í leit að humarsúpunni heimsfrægu. Öllum var þjónað hratt og vel en auðséð var á andliti þeirra útlendu að þeim þótti undarleg lykt í loftinu og mikið ganga á í húsinu.
|
 |
Þorláksmessan er einn mesti annatími ársins að vetrarlagi á Sægreifanum. Þá er herútboð starfsmanna og beinbrot eða svínaflensa eina gilda afsökunin fyrir því að mæta ekki til vinnu. Starfsmenn voru uppáklæddir með jólasveinahúfur og voru á stífum þeytingi um alla ganga, upp og niður stiga og út á hlað.
Ljúfir harmóníkutónar juku matarlystina og hátíðarsvipur á gestunum, enda eru jólin því sem næst komin þegar skatan er komin í pottinn og jólakveðjur dynja á landslýð í Ríkisútvarpinu.

.jpg)





.jpg)
|
 |
|
|
 |
|
|