|
|
|
|
 |
 |

|
23.12.2009 |
| Beitukóngur og sviđakjammi á Ţorláksmessu |
| Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrrverandi alţingismađur, lagđi beitukóng á borđ međ sér á Sćgreifanum á Ţorláksmessu, leit ekki viđ skötunni en pantađi sviđakjamma ađ vanda. Kjartan Sćgreifi lét sér ekki bregđa, enda hefur hann veriđ međ kappanum til sjós og veit allt um ađ sjóarinn tekur kjöt jafnan fram yfir fisk. |
 |
Grétar Mar leggur gildrur fyrir beitukónginn úti fyrir Sangerđi og gómar hann ţannig. Hann er eindregiđ á ţví ađ ţetta sé sjávarfang sem eigi enn frekar skiliđ ađ lenda á diski sćlkera sem veislukostur frekar en ađ nota í beitu. Og sýnishorn af pokafyllinni, sem hann kom međ á Sćgreifann, bendir heldur betur til ţess ađ slá megi upp veislu međ beitukóngi. Mikđ svakalega er ţetta góđ fćđa og holl eftir ţví! Og svo er sćkuđungurinn (beitukóngurinn) utan kvóta.... Egnt er fyrir beitukónginum međ ţví ađ setja ćti í gildrurnar og ţá álpast hann ţar inn en ekki mega líđa nema tveir til ţrír sólarhringar ţar til gildranna er vitjađ ţví ţegar agniđ er uppétiđ leitar kóngurinn annađ í fćđuleiđ og gćti ţá brölt úr gildrunum og horfiđ. Fćreyingar eru miklir beitukóngaveiđimenn og telja ađ tveir sólarhringur sé hćfilegur tími frá ţví gildurnar eru lagđar ţar til ţćr eru dregnar upp aftur. Skata var á níu diskum af hverjum tíu á Sćgreifanum á Ţorláksmessu en Grétar Mar fipađist hvergi og fékk sér sviđakjamma í hádegismatinn. Kjartan og starfsfólk hans á Sćgreifanum ţekkir sitt heimafólk og fastagesti. Ţađ er alltaf til kjammi á lager fyriir sjóarann í Sandgerđi til ađ grípa til ţegar hann lítur inn. Skliptir engu máli hvort er Ţorláksmessa eđa jóladagur.
|
 |
|
|
 |
|
|