|
|
|
|
 |
 |

|
15.12.2009 |
| Opið alla daga um hátíðar! |
| Sægreifinn er veitingahús sem sjaldan sefur. Þar er opið alla daga um jól og áramót enda segja húsráðendur að ekki sé hægt að gera erlendum ferðamönnum í Reykjavík það að koma að lokuðum dyrum. Margir þeirra hafa heyrt eða séð um Sægreifann áður en þeir koma til landsins og heimsókn þangað er ofarlega á listanum. |
 |
Oft koma útlendingar beint af flugvellinum, með úrklippu úr einhverju erlendu blaði eða tímariti í hendinni, og biðja um humarsúpu, grillaðan fisk eða grillað hrefnukjöt! Þar með er Íslandsdvölin hafin.
|
 |
|
|
 |
|
|