|
|
|
|
 |

Sægreifinn er veitingahús og fiskbúð í gömlum verbúðum við Reykjavíkurhöfn, örskotslengd frá miðbænum.
Sægreifinn er einstakur á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Hróður hans hefur borist um veröld víða og um hann hefur verið fjallað í blöðum, tímaritum og sjónvarpsstöðvum í öllum heimsálfum.
Sægreifinn er ekki neinu öðru líkur í veitingahúsaflóru Íslendinga. Sjálft húsnæðið er hluti af atvinnu- og menningarsögu Reykjavíkur, dýrindis sjávarfang er fært þar á diska, umhverfið er gamla höfnin í Reykjavík og mannlífið fjölþjóðlegt.
Heimsókn á Sægreifann er upplifun í sjálfu sér!
|
|