Fiskbúð Sægreifans er opin


virka daga kl. 9:00-18:00.
laugardaga kl. 10:00-14:00.

Hvað er á boðstólum?


Ferskur fiskur af ýmsu tagi, síld, hákarl, siginn fiskur, sigin grásleppa, hrefnurengi, selspik, saltfiskur og reyktur áll.

Reyktur áll – veislukostur!


Reyktur  áll frá Sægreifanum er sannkallaður veislukostur. Sá sem á annað borð kemst á bragðið verður hollvinur álsins ævilangt og jafnvel lengur.

Kjartan Sægreifi fær álinn aðallega frá Járngerðarstöðum í Grindavík og af Mýrum í Borgarfirði.  Hann reykir hann sjálfur í þýskum reykofni, frystir heilan og selur.

Morgunblaðsgrein um reykta álinn á Sægreifanum 1. nóvember 2009

Kjartan er mikill áhugamaður um nýtingu áls, enda alinn upp við þennan merkilega fisk í Meðallandi í Skaftafellssýslu.  Hann hefur nú keypt  sér kænu, ráðið skipsstjóra og ætlar að stofna til álaveiða á vötnum á vötnum í Árnes- og Rangárvallasýslum. Sægreifinn verður þar með líka vatnagreifi.



Kjartan Sægreifi og Elísabet Jean Skúladóttir, rekstrarstjóri veitingahússins, handfjatla girnilega ála.

Sćgreifinn, veitiingahús og fiskbúđ
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is