Humarsúpa, sæagra og grillmatur
Humarsúpan heimsfræga er í boði alla daga.
NÝTT! Sæagra súpa - í boði alla daga. Við erum viss um að hún öðlast líka heimsfrægð með tíð og tíma. Í sæagra-súpunni eru meðal annars sæbjúgu (sem Kínverjar eru sannfærðir umað auki kynorku og vinni gegn liðagigt) og lúða.
Grillaður fiskur á spjóti, allt eftir framboði hráefnis hverju sinni:
þorskur, blálanga, lax, bleikja, hörpudiskur, humar, risarækja, hrefnukjöt, steinbítur, lúða, skötuselur, karfi, sólkoli (þykkvalúra) eða rauðspretta (skarkoli).
Siginn fiskur og skata + grjónagrauturinn Steingrímur
Í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum er siginn fiskur í pottinum og skata á laugardögum.
Með skötu og signum fiskum berum við að sjálfsögðu fram hamsatólg eða hnoðmör, kartöflur og rúgbrauð.
Kóróna þessara máltíða er grjónagrauturinn Steingrímur, nefndur er eftir forsætisráðherranum fyrrverandi Hermannssyni.
Spennandi sérréttir - smellið á dagatalið!
Einhvern dag eða daga í hverri viku verða spennandi sérréttir í boði. Hvað það verður veit nú enginn fyrr en á hólminn er komið.
Viðskiptavinir okkar geta fylgst með á dagatalinu á forsíðu heimasíðunnar (smellt á viðkomandi dag og séð hvort sérréttur sé á matseðli dagsins).
|