Já, já! Á Sægreifanum eru sæti fyrir 25 manns í betri stofunni okkar og fyrir alls 45 manns í tveimur sölum á neðri hæðinni.
Við getum þannig þjónað 70 matargestum samtímis í húsinu.
Við biðjum hópa vinsamlegast um að hringja og panta borð í síma 553 1500.
Gestir tala oft um hve notalegt sé að eiga stund í góðum hópi að degi eða kvöldi hérna í betri stofuni á efri hæðinni. Þeir hafa jafnvel líkt henni við vistlegan sumarbústað fjarri heimsins glaumi.
Það segir sína sögu um stemninguna í betri stofunni okkar að sumum gestum þykir sem þeir séu komnir í sveitasælu sumarbústaðarins!