|
|
|
|
 |
Veisla og nikkuspil
Við hjálpum hópum fólks til að gera sér glaðan dag með góðri veislu í betri stofunni á efri hæð, þar sem er afskaplega notalegt að vera. Sumir segjast hafa á tilfinningunni að þeir séu komnir í sumarbústað úti í sveit en eru í raun svo að segja í hjarta Reykjavíkur!
Stundum dreymir gesti okkar um harmónikkuleik í samkvæmið til að kynda undir stemningunni og auðvitað björgum við nikkara handa þeim!
Hópar sem vilja blóta þorra í Sægreifanum eru hjartanlega velkomnir. Þorramatur er á matseðli á þorranum en við tökum gjarnan að okkur að annast þorrablót fyrir hópa, tíu eða fleiri.
|
|